|
Hamraskóli tók þátt í Grunnskólahlaupinu á Grafarvogsdaginn. Stelpa og strákur úr hverjum árgangi frá 1. -7. bekk hlupu boðhlaup í kappi við aðra skóla hverfisins á íþróttavellinum í Dalhúsum. Glæsilegir fulltrúar skólans okkar stóðu sig með miklum sóma og lentu í 4. sæti. Til hamingju með það krakkar og kærar þakkir til foreldra og foreldrafélagsins fyrir stuðninginn.
Áfram Hamraskóli!
|
|
|
Nemendur í 2-3 bekk hittust í Heiðmörk miðvikudaginn 1. september og grilluðu pylsur.
Góð mæting var hjá nemendum og fjölskyldum þeirra. Fleiri myndir.... |
|
Rafræn skráning í mataráskrift hjá grunnskólunum |
|
|
|
|
Á þessu skólaári verður tekið við skráningum í mataráskrift í grunnskólum Reykjavíkur í gegnum Rafræna Reykjavík.
Skráning hefst mánudaginn 23. ágúst nk. og hafa foreldrar fengið bréf þar að lútandi. Sjá nánar.....
|
Tónskóli Björgvins í Hamraskóla fer nú að hefja starfsemi sína og mun hann starfa innan Hamraskóla eins og á síðastliðnu skólaári.
Þeir nemendur sem eru nú þegar búnir að sækja um nám í Tónskólanum veturinn 2010-2011 fá sent bréf með upplýsingum vegna innritunar á næstu dögum. Innritun verður í Hamraskóla föstudaginn 27. ágúst og mánudaginn 30. ágúst frá kl. 16:30 - 18:30 báða dagana. |
|
Lesa meira...
|
|
Skólasetning Hamraskóla 2010 verður mánudaginn 23. ágúst næstkomandi. Nemendur mæti á sal skólans sem hér segir:
1. - 5. bekkur kl. 9:00
6. - 7. bekkur kl. 10:00
8. - 10. bekkur kl. 11:00
Kennsla hefst svo þriðjudaginn 24. ágúst samkvæmt stundaskrá.
Innkaupalista má sjá hér. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|