Fréttir frá skrifstofu


Hvatningarverðlaun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

Kennarar í 1. - 5. bekk fengu í gær hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir þróunarverkefni í íslensku: Vörður og vegvísa. Verkefnið gengur út á að vinna eftir hugmyndafræði sem þróuð hefur verið í Ardleigh Green Junior skólanum í London og Hamraskóli hefur verið í samstarfi við. Þetta felur m.a. í sér breytta kennsluhætti og samfellu í íslenskunámi frá 1. - 5. bekk.

Lesa meira...
 
Hvað er teningurinn þungur?? Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Sigurvegari í getrauninni er Valdimar P. Magnússon en hann áætlaði að teningurinn væri 3,5 kg. Teningurinn er aftur á móti 3,54 kg. Eyþór Tumi tók við verðlaununum fyrir hans hönd.
Þökkum fyrir góða þátttöku og óskum sigurvegaranum til hamingju.

 
Ég á lítinn skrýtinn skugga Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

2. og 3.bekkur fór út á skólalóð í sólinni og teiknuðu nemendur skuggana sína og skreyttu með mynstrum. Hér má sjá myndir af nemendum við vinnuna í veðurblíðunni.

 
Skólaþing Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Miðvikudaginn 19. maí fóru nemendur í 10 SR í heimsókn á Skólaþing ásamt kennara sínum. Okkar nemendur tóku allir virkan þátt og var framkoma þeirra öll til fyrirmyndar. Á Skólaþingi fara nemendur efstu bekkja grunnskóla í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Sjá myndir>>>

Lesa meira...
 
Vorsýning Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

srrealskar poppsklar 001Vorsýning Hamraskóla verður haldin miðvikudaginn 26. maí næstkomandi milli kl. 16:00 og 18:00.
Þar verða til sýnis ýmis verk sem nemendur hafa unnið.

Allir velkomnir.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 15