Fréttir frá nemendafélagi
Grafarvogsdagurinn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Hamraskóli tók þátt í Grunnskólahlaupinu á Grafarvogsdaginn. Stelpa og strákur úr hverjum árgangi frá 1. -7. bekk hlupu boðhlaup í kappi við aðra skóla hverfisins á íþróttavellinum í Dalhúsum. Glæsilegir fulltrúar skólans okkar stóðu sig með miklum sóma og lentu í 4. sæti. Til hamingju með það krakkar og kærar þakkir til foreldra og foreldrafélagsins fyrir stuðninginn.
Áfram Hamraskóli!

 
Skólasöngur Hamraskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

skolasongurSkólasöngur Hamraskóla var frumfluttur 16.nóvember 2010.

Höfundur textans er Ægir Magnússon og höfundur lagsins er Björgvin Þ. Valdimarsson.

Hlusta á lagið:

Skólasöngur Hamraskóla

Þar sem sólin skín
sálin nærð er mín.
Syngjum sama hljóm
sigrum dagsins hjóm.
Ræktum hug og hönd
hnýtum tryggðarbönd.

Það er draumaskólinn minn

Þar sem göngum glöð
geislum kát í röð.
Virðum vinskapinn
virkjum hugkraftinn.
Blíð er barnsins lund
bjarta morgunstund.

Það er draumaskólinn minn.

    ;,;Í Hamraskóla.
Í Hamraskóla.
Finn ég farveginn
fyrir drauminn minn.   

Ræktum frjóan jarðveginn.;,;    

 
 Höfundur texta: Ægir Magnússon
Höfundur lags: Björgvin Þ. Valdimarsson

 
Árshátíðin 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

myndin segir alltÁrshátíðin fór glæsilega fram að vanda. Skemmtun, matur, tónlist og dans - þetta getur ekki orðið betra:) Nemendur sýndu sínar bestu hliðar og allir skemmtu sér vel. Sjá myndir...... 

Fyrr um daginn sýndu nemendur t.d. stuttmyndir, skólablað, útvarpsþætti, plaköt og fl. sem þeir höfðu unnið við í undirbúningsvikunni. Eins sýndu kennararnir sönghæfileika sína (humm) og nemendur sprelluðu í íþróttahúsinu.

 
Útvarpsþáttur 1 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 
Útvarpsþáttur 2 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 3