Fréttir frá foreldrafélagi
Heiðmörkin heillar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Nemendur í  2-3 bekk hittust í Heiðmörk miðvikudaginn 1. september og grilluðu pylsur.

Góð mæting var hjá  nemendum og fjölskyldum þeirra. Fleiri myndir....

 
Velheppnuð Hamrahátíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 Vel heppnuð vorhátíð Hamraskóla.
Mæting var mjög góð og reyndu margir fyrir sér í leiktækjum frá ÍTR. Löng biðröð myndaðist við grillið og svo blotnuðu sumir aðeins í vatnsblöðruþrautinni:)
Foreldrafélagið þakkar góða aðsókn nemenda og foreldra. Sérstakar þakkir og hrós fá nemendur 9. bekkjar fyrir frábæra aðstoð við pylsusölu, andlitsmálningu, stjórnun á vatnsblöðrusölu og eftirlit með leiktækjum. Þökkum við einnig ITR fyrir lán á leiktækjunum. Sjá myndir>>>

Lesa meira...
 
Hamrahátíðin 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Miðvikudaginn 5. maí frá kl. 17:30-19:00 heldur Foreldrafélag Hamraskóla fjölskylduskemmtun í Hamraskóla. Í tengslum við skemmtunina verður aðalfundur félagsins haldinn í parketstofunni og hefst hann kl. 17:35.
 
Grillað verður eftir fundinn og boðið verður upp á pylsur og svaladrykk. Hver pylsa kostar 200 kr. og fylgir svaladrykkur. 
 
Á meðan á aðalfundi foreldrafélagsins stendur munu nemendur úr 9.bekk Hamraskóla sjá um leiki, andlitsmálun og annað skemmtilegt fyrir börnin á meðan við foreldrarnir fundum. Einnig mætir lögreglan á svæðið og tékkar á búnaði :)
Það er von okkar í stjórn foreldrafélagsins að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka þátt í þessari skemmtilegu fjölskylduhátíð . Sjáumst.

 

 
Aðalfundarboð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Hér með er boðað til aðalfundar Foreldrafélags Hamraskóla í parketstofunni í Hamraskóla miðvikudaginn 5.maí kl. 17:35.

Dagskrá:
  1. Skýrsla stjórnar
  2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram
  3. Skólastjóri fer yfir stöðu og verkefnin framundan.
  4. Kosning í foreldrafélag
  5. Kosning endurskoðenda
  6. Önnur mál
Stjórn Foreldrafélags Hamraskóla.
 
Páskabingó 27. mars Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

  PaskabingoNú er komið að hinu árlega páskabingó Foreldrafélags Hamraskóla, en það verður haldið laugardaginn 27.mars n.k.  milli kl. 11.00 og 13.00
 

Allir eru velkomnir, ömmur, afar, frænkur, frændur, mömmur, pabbar, börn og allir hinir. Bingóspjöld verða seld á staðnum á  kr. 200.-    Ásamt því að 10.bekkur verður með kökubasar og sölu á gosi. Flottir vinningar í boði

 Sjáumst hress og kát á páskabingói í Hamraskóla.  Stjórnin

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 4