Hvatningarverðlaun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

Kennarar í 1. - 5. bekk fengu í gær hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir þróunarverkefni í íslensku: Vörður og vegvísa. Verkefnið gengur út á að vinna eftir hugmyndafræði sem þróuð hefur verið í Ardleigh Green Junior skólanum í London og Hamraskóli hefur verið í samstarfi við. Þetta felur m.a. í sér breytta kennsluhætti og samfellu í íslenskunámi frá 1. - 5. bekk.

Skólinn fékk nú í vor styrk til að þróa þessi vinnubrögð frekar í eldri bekkjum og byrjað verður á 6. og 7. bekk á næsta skólaári.

Einnig eru stjórnendur í þróunarverkefni þessu tengdu í samstarfi við Menntasvið, tvo aðra grunnskóla í Reykjavík og fyrrgreindan skóla í London. Þróunarverkefni stjórnenda gengur út á að þróa viðmið um gæði kennslu og hefur verkefnið hlotið þrjá þróunar- og endurmenntunarstyrki.