Skólaþing Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Miðvikudaginn 19. maí fóru nemendur í 10 SR í heimsókn á Skólaþing ásamt kennara sínum. Okkar nemendur tóku allir virkan þátt og var framkoma þeirra öll til fyrirmyndar. Á Skólaþingi fara nemendur efstu bekkja grunnskóla í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Sjá myndir>>> Nemendurnir fátækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða fyrir framákveðin málefni sem fyrir þá eru lögð til lykta á þingflokksfundum, nefndarfundum og þingfundum. Jafnframt hlusta þeir á og meta röksérfræðinga sem kallaðir eru til til að veita þingmönnum ráðgjöf.Þannig er ætlunin að veita innsýn í sambandið milli atburða ísamfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarðana og starfa Alþingisog sýna áhrif almennings, sérfræðinga, fjölmiðla og hagsmunaaðila álöggjafarstarfið. Nemendur eiga að komast að lýðræðislegri niðurstöðumeð því að hlusta á og meta rök og álit annarra, tjá eigin skoðun ogtaka afstöðu.