Þróun í íslenskukennslu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Kennarar í 1. - 5. bekk Hamraskóla hafa verið að þróa íslenskukennsluna hjá sér í vetur en sú vinna hefur vakið mikla athygli meðal skólafólks. Kynningar hafa verið haldnar fyrir skólastjóra í Reykjavík, á Öskudags-ráðstefnu og í Vogaskóla. Auk þess hafa kennarar og stjórnendur úr mörgum skólum komið í heimsókn í Hamraskóla til að sjá kennsluna og fá kynningu á því sem verið er að gera. Mikið af því sem kennararnir hafa verið að vinna við er búið að gefa út á diskum og nú þegar hafa nokkrir skólar fest kaup á þessu efni.