|
Kór Hamraskóla (eldri og yngri deild) býður íbúum Hamrahverfis og Bryggjuhverfis á vortónleika kórsins í Grafarvogskirkju mánudaginn 10. maí kl. 20:00.
Undirleikarar eru nemendur úr Tónskóla Björgvins, en þeir eru: Anna Eva Steindórsdóttir píanó, Embla Nanna Þórsdóttir píanó, Nína Lovísa Ragnarsdóttir píanó, Þórður Ágústsson píanó og Örvar Óli Björgvinsson gítar.
Fjölmargir einsöngvarar koma fram en þeir eru allir félagar í kórnum.
Stjórnandi kórsins er Björgvin Þ. Valdimarsson.
Aðgangur er ókeypis.
Bestu kveðjur, Kór Hamraskóla
|