| Vörður og vegvísir |
|
|
|
|
Vörður og vegvísar, heildstæð íslenskukennsla í 1. – 5. bekk.
Kennarar á yngsta stigi skólans hafa undanfarin misseri unnið að þróunarverkefni í íslensku fyrir 1. – 5. bekk.
Grunnstoðir íslenskukennslunnar eru lestur, ritun og munnleg tjáning. Málfræði, stafsetning og bókmenntir eru fléttaðar inn í heildstæð verkefni sem byggja á vönduðum textum.
Einkenni kennslunnar:
· Skýr markmið
· Samfella milli árganga
· Markmið ávallt sýnileg nemendum
· Lotuskipt skólaár
· Markvissar innlagnir
· Notkun upplýsingatækni við innlagnir og verkefnavinnu
· Vinnubrögð kennd og æfð
· Amboð aðgengileg nemendum
· Kennt í hringekju
· Samræmd vinnubrögð
· Þjálfun vikulega í framsögn og tjáningu
· Virk hlustun þjálfuð með nemendum
· Virkir nemendur
· Virkt símat
Skólinn er í samstarfi við Ardleigh Green Junior School, sem er einn af tuttugu bestu skólum Bretlands og er leiðandi í móðurmálskennslu.
Nánari upplýsingar eru á síðunni http://www.hamrar.wordpress.com
Netfangið er
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
|















