Minnum á fundinn fimmtudaginn 7. maí, fyrir nemendur í verðandi 9. bekk og foreldra/forráðamenn þeirra kl. 8:10 í Hamraskóla.
Tónskóli Björgvins í Hamraskóla
Innritun nýrra nemenda stendur yfir en henni lýkur 30. maí.
Tónskóli Björgvins er sjálfstætt starfandi tónlistarskóli sem hóf samstarf við Hamraskóla haustið 2007. Kennslan fer fram á skólatíma, þannig að nemendur í einkatíma í hljóðfæraleik fá að fara út úr kennslustundum til að sækja tónlistartíma. Í kennslunni er lögð áhersla á að gera nemendur jafnhæfa
Margir nemendur hafa verið með fótboltamyndir í skólanum síðustu daga. Þessar myndir valda oft truflun í tímum þar sem mikil spenna er fyrir myndunum. Það hefur líka komið fyrir að yngri nemendur eru að tapa sínum myndum í hendurnar á eldri nemendum og veldur það oft gráti hjá þeim yngri og reynsluminni. Myndirnar eru því alveg bannaðar í skólanum og gætu þeir sem koma með myndir í skólann átt það á hættu að þær verði teknar af þeim.
Innbrot í skólann
Síðustu vikur hefur verið brotist inn í skólann og ýmsum tækjum og tölvubúnaði stolið. Má þar nefna flatskjá, heimabíó, myndavél og borðtölvum. Lögreglan sér um rannsókn málsins en við viljum biðja alla þá sem gætu lumað á upplýsingum að koma þeim til lögreglunar sem fyrst.