|
1.- 6. bekkur kom saman á sal á fimmtudagsmorgun til að hlusta á upplestur úr sögunni Fjóli Fífils - sverð Napóleons. Kristjana Friðbjörnsdóttir höfundur bókarinnar og kennari í 4. - 5. bekk las fyrir nemendur. Upplesturinn tókst ákaflega vel, nemendur voru til fyrirmyndar, hlustuðu af athygli og þurftu margs að spyrja höfundinn að lestri loknum. Sjá myndir.....
|
|
|
 Gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga.
SAFT, ungmennaráð SAFT, Heimili og skóli og Nýherji efna til samkeppni meðal grunn- og framhaldsskólanemenda um gerð jafningjafræðsluefnis sem stuðlar að jákvæðri og öruggri netnotkun. Innsent efni má vera í formi myndbanda, kennslueininga, veggspjalda, handrita af leiknu efni, leikir o.s.frv., en miðað er við að það sé nýtilegt við jafningjafræðslu í grunnskólum landsins. Tekið er við efni bæði frá einstaklingum og bekkjum. Lesa meira ........ |
|
Hó, hó, hó ..... rauður dagur:) |
|
|
|
Hvetjum alla bæði nemendur og starfsmenn skólans að mæta í einhverju rauðu næsta föstudag (11. desember). |
|
Teiknisamkeppni um jólakort Hamraskóla.
Hvað á að gera ? Teiknaðu, málaðu, litaðu eða klipptu fallega jólamynd í stærðinni A5. Skilaðu henni á skrifstofuna eða til Lindu myndmenntakennara fyrir 9.desember 2009. Lesa meira....... |
|
  Úrslit réðust í „Gettu best“ spurningakeppni unglingastigs Hamraskóla í dag. Hver bekkur sendi tvö lið í keppnina skipað þremur nemendum. Í síðustu viku var útsláttarkeppni og þau tvö lið sem stóðu sig best kepptu til úrslita. 10. bekkur ( Viktor, Helgi og Jörgen) hlaut sigur úr bítum eftir drengilega keppni við lið 8. bekkjar. Nemendur í 9. og 10. bekk buðu upp á skemmtiatriði í hléi. Sjá myndir.....
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|