Hamraskóli
Jólakveðja Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Starfsmenn Hamraskóla óska öllum nemendum og foreldrum/forráðamönnum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

forsa

Við hittumst síðan hress og kát 5. janúar 2010 en þá hefst skólinn aftur eftir jólaleyfi. Kennsla samkvæmt stundaskrá, hvað annað:)      Myndir frá jólaballi nemenda...

 
Ferð í Grafarvogskirkju Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

Kveikt á kertiFarið var í árlega kirkjuferð Hamraskóla miðvikudaginn 16. desember. Hefð er fyrir því að nemendur gangi til kirkju og eigi saman notalega stund. Við sungum nokkur jólalög og hlustuðum á tónlist sem flutt var af nemendum skólans, bæði á píanóleik og kórsöng. Tveir nemendur úr 7. bekk lásu jólaguðspjallið. Sjá myndir . . . .

 
Söngur á sal :) Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

jolasalur09Það var jólalegt að líta yfir barnahópinn á söng í sal í dag. Allir voru með jólasveinahúfur og margir klæddir í rauðan fatnað. Boðið var upp á mörg atriði, söng, upplestur og hljóðfæraleik. Meðan bekkirnir voru að týnast í salinn spiluðu Arna Lára, Kristjana og Sigríður María nemendur í 4.-5. bekk fyrir okkur jólalög.

Lesa meira...
 
Sigurvegari í jólakortasamkeppni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Tanja Líf og Linda myndmenntakennariÍ síðustu viku stóð Linda myndmenntakennari fyrir jólakortasamkeppni. Margir nemendur tóku þátt og ekki var auðvelt að velja eitt kort úr fjöldanum. Kortið sem var valið er hannað af Tönju Líf í 7. bekk. Stjórnendur Hamraskóla eru ánægðir með að geta sent út kort hannað af nemanda skólans.

Til hamingju Tanja Líf. Hér má sjá kortið.

 
Jólagetraun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
jolagetraun_umferd
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>