Hamraskóli
Getraun vikunnar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Í þessum leik fá nemendur skólans fræðslu um hvaða reglur gilda á tilteknum svæðum skólans og svara síðan getraun um það svæði sem tekið er fyrir í þeirri viku.
Sigurvegarar í getrauninni þessa vikuna eru Sandra Björt í 4.bekk, Júlía í 4.bekk og Brynja í 2.bekk.
Til hamingju með þetta stelpur þið stóðuð ykkur vel :-)

 
Árshátíð í 8. - 10. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 Miðvikudaginn 24. febrúar verður árshátíð nemenda í Hamraskóla haldin í samvinnu við ÍTR. Ragnar umsjónamaður félagsmiðstöðvarinnar hefur haft veg og vanda af undirbúningi skemmtunarinnar. Kvöldið hefst með sameiginlegu borðhaldi og á matseðli kvöldsins er kjúklingur og svo er ís í eftirrétt. Að loknu borðhaldi verður boðið upp á skemmtiatriði og dansleik. Nemendur fá frí í fyrstu tveimur kennslustundunum á fimmtudeginum. Miðinn á árshátíðina kostar 2700 kr. Skemmtunin hefst kl. 19:45 og stendur til 23:30.

 
Netöryggi - nemendasamkeppni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

netöryggiNú er að byrja nemendasamkeppni á vegum SAFT í samstarfi við Evrópusambandið um gerð veggspjalda í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum.
Samkeppnin er ætluð nemendum á aldrinum 5 til 8 ára. SAFT efnir einnig til netspurningasamkeppni í samstarfi við Evrópusambandið fyrir nemendur á aldrinum 9 til 15 ára. Vegleg verðlaun eru í boði. Sjá meira..

 
Flottir nemendur eins og alltaf Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

6. bekkur sýnir listir sýnarEins og allir vita hefur Söngur á sal gefið mörgum nemendum tækifæri á að spreyta sig í söng og leik. Hér má sjá nokkrar myndir frá því að nemendur úr 9. bekk fluttu lagið "Frelsarinn" og nemendur í 6. bekk fluttu lag sem þau sömdu og einnig leikritið "Fáránleikur".

 
Nýjar myndir í myndasafni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

3. bekkur í MSNemendur í 3. bekk fóru í Mjólkursamsöluna í síðustu viku. Ferðin tókst vel í alla staði og fengu nemendur hrós fyrir góða framkomu. Nemendur voru glaðir og ánægðir með heimsóknina og hlustuðu vel. Sjá myndir.

Baldur, Erla Björg, Eiríkur Ingi, María, Jón Patrik og Jón Þór sungu tvö íslenska lög í tilefni þorra í söng á sal 29.feb. Tókst flutningurinn vel. Sjá myndir.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>