Hamraskóli
Stóra upplestrarkeppnin Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 Nemendur í Hamraskóla náðu góðum árangri í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var í gær í Kristín, Steinar og TanjaGrafarvogskirkju. Steinar Ingi nemandi í 7. bekk var í öðru sæti í keppninni, en auk hans keppti Tanja Líf í 7. bekk sem einnig náði góðum árangri. Þá er gaman að geta þess að annar tveggja kynna keppninnar var Kristín Lilja nemandi í 7. bekk. Sjá myndir......

 
Til fyrirmyndar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Ýmsar uppákomur hafa undanfarið verið síðustu vikur, bæði innan og utan skóla. Má þar nefna skólahreysti, spurningakeppni, söng á sal.
Fjórir stæltir nemendur tóku þátt í Skólahreysti fyrir hönd Hamraskóla. Það voru þau Naomi Ruth og Ófeigur Atli úr 9. bekk, Arna úr 10. bekk og Hilmar í 8. bekk. Nokkur hópur nemenda kom og hvatti sitt fólk í keppninni og voru þau sjálfum sér og skólanum til sóma.

Lesa meira...
 
Tónleikar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Vikingur HeiðarMiðvikudaginn 10. mars fórum við með nemendur okkar í 8. - 10. bekk á Sinfóníutónleika. Flutt var verk eitt verk, Píanókonsert nr. 3 eftir Sergei Rachmaninoff. Konsertinn tók 40 mín. í flutningi Sinfóníunnar og Víkings Heiðars, sem er einn efnilegasti píanóleikari Íslands. Nemendur okkar sýndu og sönnuðu að þeir eru flottir fulltrúar skólans. Framkoma þeirra var til fyrirmyndar og vonandi nutu þeir stórkostlegrar tónlistar og flutnings.

 
Árshátíðin 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

myndin segir alltÁrshátíðin fór glæsilega fram að vanda. Skemmtun, matur, tónlist og dans - þetta getur ekki orðið betra:) Nemendur sýndu sínar bestu hliðar og allir skemmtu sér vel. Sjá myndir...... 

Fyrr um daginn sýndu nemendur t.d. stuttmyndir, skólablað, útvarpsþætti, plaköt og fl. sem þeir höfðu unnið við í undirbúningsvikunni. Eins sýndu kennararnir sönghæfileika sína (humm) og nemendur sprelluðu í íþróttahúsinu.

 
Upplestrarkeppnin í 7. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Alexander, Tanja, SteinarUndankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina innan skólans er lokið. Að venju er það 7. bekkur sem tekur þátt. Keppnin í skólanum fór vel fram þar sem nemendur nutu upplestrar og flutnings tónlistar. Í lokin voru þátttakendur skólans valdir en þeir urðu: Steinar Ingi Kolbeinsson og Tanja Líf Davíðsdóttir. Varamaður er Alexander H. Kjartansson. Sjá myndir...

Lokahátíð fyrir Grafarvog verður í Grafarvogskirkju 22. mars 2010.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>