|

Vikuna 19. – 23. apríl verður 7. bekkur í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði. Kennararnir Birgit og Ægir fara með þeim og eins munu foreldrar skiptast á að vera líka. Auk Hamraskóla verða á sama tíma Grundaskóli á Akranesi og Kópavogsskóli. |
|
|

Barnamenningarhátíð Reykjavíkur verður 19. -25. apríl. Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún er hugsuð fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Þema hátíðarinnar er forvitni. Okkar þáttur í hátíðinni er að mánud. 19. 04. taka allir nemendur í 4. bekk þátt í skrúðgöngu og fara þau úr skólanum um 9-9:30, tveir nemendur úr 8. bekk (Tinna Dís og Kristín ) taka þátt í sýningaratriði þar sem hópar unglinga úr borginni fylgja göngunni, Í Listasafni Reykjavíkur verður verk eftir um 80 nemendur í Hamraskóla til sýnis alla vikuna, 20 ljósmyndir frá List- og verkhópnum verða í strætó í hverfinu og stefnt er að því að nemendur sendi heim eitt verkefni á dag þessa barnamenningarviku. |
|

Síðastliðinn fimmtudag kom 9.bekkur frá Mou skole á Jótlandi í heimsókn til okkar í Hamraskóla. Nemendur 10.bekkjar tóku á móti þeim og var byrjað á morgunverði í boði skólans. þar stóðu allir upp og kynntu sig á dönsku. Því næst hófst spurningakeppni þar sem bekkirnir svöruðu ýmsum spurningum um lönd og þjóð hvors annars, nemendur okkar voru m.a. alveg með dönsku konungsfjölskylduna á hreinu, |
|
Lesa meira...
|
|
Páskaleyfi 29. mars - 6. apríl 2010
Samstarfsdagur án kennslu er þriðjudaginn 6. apríl.
Kennsla hefst á ný samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. apríl.
Við í Hamraskóla óskum nemendum okkar
og forráðamönnum þeirra gleðilegra páska.
|
|
Nú er komið að hinu árlega páskabingó Foreldrafélags Hamraskóla, en það verður haldið laugardaginn 27.mars n.k. milli kl. 11.00 og 13.00
Allir eru velkomnir, ömmur, afar, frænkur, frændur, mömmur, pabbar, börn og allir hinir. Bingóspjöld verða seld á staðnum á kr. 200.- Ásamt því að 10.bekkur verður með kökubasar og sölu á gosi. Flottir vinningar í boði 
Sjáumst hress og kát á páskabingói í Hamraskóla. Stjórnin |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|