Hamraskóli
Velheppnuð Hamrahátíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 Vel heppnuð vorhátíð Hamraskóla.
Mæting var mjög góð og reyndu margir fyrir sér í leiktækjum frá ÍTR. Löng biðröð myndaðist við grillið og svo blotnuðu sumir aðeins í vatnsblöðruþrautinni:)
Foreldrafélagið þakkar góða aðsókn nemenda og foreldra. Sérstakar þakkir og hrós fá nemendur 9. bekkjar fyrir frábæra aðstoð við pylsusölu, andlitsmálningu, stjórnun á vatnsblöðrusölu og eftirlit með leiktækjum. Þökkum við einnig ITR fyrir lán á leiktækjunum. Sjá myndir>>>

Lesa meira...
 
Gísla saga Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Á vorönn hafa nemendur 10. bekkjar lesið og unnið með Gísla sögu Súrssonar. Þau hafa lesið söguna, unnið verkefni og skipst á að gera útdrátt úr hverjum kafla. Ákveðið var í samstarfi við kennara í 4. og 5. bekk að nemendur 10. bekkjar kynntu nemendum 4. og 5. bekkja þessa sögu.

Lesa meira...
 
Laugar í Sælingsdal Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

9. bekkur verður að Laugum í Sælingsdal í skólabúðum frá mánud. 26. – föstud. 30. apríl. Með þeim fer Guðmunda ásamt  foreldrum sem skipta með sér vikunni.

 
Frá Reykjaskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Reykjaskoli

Allt gott er að frétta af nemendum okkar í 7. bekk sem eru í skólabúðum. Krakkarnir í Hamraskóla unnu hárgreiðslukeppnina. Það var Eiríkur Ingi sem vann, en þær Erla Björg og María Lovísa sáu um greiðsluna. Auk þess komust þeir Guðjón og Felix í undanúrslit. Þau koma svo heim seinna í dag. Nýjar myndir frá ferðinni>>   Bestu kveðjur, Birgit og Ægir

 
Valgreinar 2010-2011 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Hér má finna upplýsingar um val nemenda í 9. og 10. bekk Hamraskóla fyrir  skólaárið 2010-2011.
 

Upplýsingabæklingur.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>