|
Vorsýning Hamraskóla verður haldin miðvikudaginn 26. maí næstkomandi milli kl. 16:00 og 18:00.
Þar verða til sýnis ýmis verk sem nemendur hafa unnið.
Allir velkomnir.
|
|
|

Þrjú verkefni tengd Hamraskóla hafa fengið styrk úr Vonarsjóði.
1) TTT (Tími Til að Tengja) hópurinn er samstarfshópur skólastjóra í símenntun og tilheyra Yngvi og Sigurlaug honum. Sá hópur fékk styrk til að þróa áfram viðmið um fagkennslu.
2) Kennarar í 1. – 5. bekk fengu styrk til að þróa námsmat í tengslum við íslenskukennslu.
3) Skólinn fékk styrk til að þróa íslenskukennslu í 6. og 7. bekk. |
|

Kennarar í 1. - 5. bekk Hamraskóla hafa verið að þróa íslenskukennsluna hjá sér í vetur en sú vinna hefur vakið mikla athygli meðal skólafólks. Kynningar hafa verið haldnar fyrir skólastjóra í Reykjavík, á Öskudags-ráðstefnu og í Vogaskóla. Auk þess hafa kennarar og stjórnendur úr mörgum skólum komið í heimsókn í Hamraskóla til að sjá kennsluna og fá kynningu á því sem verið er að gera. Mikið af því sem kennararnir hafa verið að vinna við er búið að gefa út á diskum og nú þegar hafa nokkrir skólar fest kaup á þessu efni. |
|
Kór Hamraskóla (eldri og yngri deild) býður íbúum Hamrahverfis og Bryggjuhverfis á vortónleika kórsins í Grafarvogskirkju mánudaginn 10. maí kl. 20:00.
Undirleikarar eru nemendur úr Tónskóla Björgvins, en þeir eru: Anna Eva Steindórsdóttir píanó, Embla Nanna Þórsdóttir píanó, Nína Lovísa Ragnarsdóttir píanó, Þórður Ágústsson píanó og Örvar Óli Björgvinsson gítar.
Fjölmargir einsöngvarar koma fram en þeir eru allir félagar í kórnum.
Stjórnandi kórsins er Björgvin Þ. Valdimarsson.
Aðgangur er ókeypis.
Bestu kveðjur, Kór Hamraskóla |
|
Tónskóli Björgvins í Hamraskóla |
|
|
|
|
Innritun nemenda vegna skólaársins 2010-2011 stendur yfir en henni lýkur 10. júní.
Tónskóli Björgvins er sjálfstætt starfandi tónlistarskóli sem hóf samstarf við Hamraskóla haustið 2007. Kennslan fer fram á skólatíma, þannig að nemendur í einkatíma í hljóðfæraleik fá að fara út úr kennslustundum til að sækja tónlistartíma. |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|