|
Nú eru átaksvikur varðandi PBS í gangi og þessa vikuna er verið að skerpa á reglunum varðandi matsal. Gott væri ef foreldrar ræddu við börn sín um umgengni í matsal.
|
Svæði:
|
Góðvild
|
Ábyrgð
|
Tillitssemi
|
|
Matsalur
|
• bíðum róleg í röðinni • þökkum fyrir okkur • leyfum hverjum sem er að sitja við hlið okkar
|
• notum hnífapör og glös á viðeigandi hátt • hellum gætilega í glösin • göngum frá borðbúnaði
|
• göngum rólega að okkar sæti • þrífum borð og setjum rusl í fötur • sitjum kyrr við borðið
|
|
|
|
Lífshlaupið í Hamraskóla var sett formlega af stað í dag 1. febrúar. Nemendur og starfsmenn komu saman á sal skólans þar sem farið var yfir tilgang og skráningu. Svo var endað á smá keppni þar sem nemendur og starfsmenn reyndu með sér..... sjá myndir:)
Muna svo að vera dugleg að hreyfa sig og skrá stigin í skólakeppnina. |
|
Lífshlaupið hvatningarleikur fyrir grunnskóla hefst miðvikudaginn og stendur í tvær vikur þ.e. frá 1.-14. febrúar. Verum dugleg að hvetja krakkana til dáða og skrá hreyfinguna til að safna stigum fyrir skólann okkar.
|
|
Mánudaginn 23. janúar fóru nemendur 3. bekkjar í heimsókn í Mjólkursamsöluna. Fengu þeir fræðslu um sögu Mjólkursamsölunar, mjólkurvinnslu, pökkun og ísgerðina. Lalli töframaður varð á vegi okkar og sýndi nokkur óborganleg töfrabrögð og einnig fundum við Klóa liggjandi upp við kókómjólkurstæður.
Í lok heimsóknarinnar var öllum boðið upp á ískalda mjólk, kleinur, kex og ís.
Mjólkursamsalan leysti alla út með lítilli gjöf, kókómjólkursundpoka. |
|
Spurningakeppni grunnskólanna |
|
Lið Hamraskóla (Alexander, Steinar, Tómas og Þórður) stóð sig mjög vel í undankeppninni og er komið í 8 liða úrslit. Sú keppni verður um miðjan febrúar. Flott hjá ykkur drengir:) |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|